688 - Friðheimar í Bláskógabyggð

688 - Friðheimar í Bláskógabyggð
Fjöldi rúma: 0
  • Opinn landbúnaður
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Hestasýningar
Á Friðheimum er boðið upp á hestasýningar.  Hér er um faglega sögu- og gangtegundasýningu að ræða sem tekur um 12 mínútur í flutningi.  Sýningin er hnitmiðuð, hvoru tveggja fræðandi og skemmtileg upplifun.  Hún veitir innsýn í eitt merkasta hestakyn heims sem hefur verið samofið menningu og þjóð í gegnum aldirnar.  Eftir sýninguna er ferðamönnum boðið inn í hesthús þar sem hægt er að komast í návígi við hrossin, taka myndir og spjalla við knapana. 

Þeir sem hafa áhuga á grænmetisræktun gefst kostur á að skoða tómatræktunina á bænum í framhaldi af hestatengdu uppákomunni. Hægt að panta sýningu fyrir hópa, 10 manns og fleiri. Sýningin er til á ýmsum tungumálum.
  
Friðheimar eru í Reykholti, um 90 km frá Reykjavík við veg 35. 
 

Húsdýr: Hestar

Opið: 01.06. - 01.10
 
Netfang: fridh@centrum.isHeimasíða: www.fridheimar.is
Gestgjafar Knútur Ármann, Helena Hermundardóttir.