Sumarhús við bæinn, staðsett í hjarta Suðurlands með tveimur svefnherbergjum (eitt hjónaherbergi og kojuherbergi f. 3), einnig rúmgott svefnloft fyrir allt að 5 manns. Vel útbúið eldhús ásamt setustofu með sjónvarpi og útvarpi. Skjólgóð verönd með útigrilli.
Tilvalin staðsetning fyrir þá sem ferðast um Suðurland. Skammt norður af bænum er Vörðufell, en á fjallinu er að finna skemmtilegar gönguleiðir. Gestir geta fengið að skoða dýrin eða komast á hestbak í samráði við gestgjafa.
Dveljið á alvöru íslenskum sveitabæ og upplifið það sem við köllum “Sveitalíf”
Gestir taka þátt í lífinu á bænum með því að fylgjast með eða taka beinan þátt í daglegum störfum á bænum, sem geta verið nokkuð breytileg eftir árstíðum. Á Vorsabæ II er einkum stunduð hrossarækt, en jafnframt er búið með sauðfé, geitur, nautgripi og landnámshænsni.
Boðið er upp á stutta reiðtúra, þar sem við byrjum ávallt á að fara á bak inni í reiðhöll til að velja hest við hæfi hvers og eins. Einnig getum við teymt hesta undir börnum. Fyrir meira vana reiðmenn getum við boðið upp á dagsferðir eftir samkomulagi.
Upplagt að taka sumarhúsið á leigu yfir nótt eða í nokkrar nætur og njóta dvalarinnar í nánu sambandi við sveitalífið. Stutt er í margskonar þjónustu og afþreyingu í nágrenninu s.s. verslanir, sundlaug o.fl.
Vorsabær er við veg nr. 324.
Opið: Allt árið
Búskapur: Hestar, kindur, geitur, nautgripir, hænur, hundar og kettir.
Næsta þéttbýli: Flúðir 17 km (verslun, golf), Selfoss 30 km (öll almenn þjónusta) Brautarholt 2 km ( sundlaug, kertasmiðja og sjoppa ).
Gestgjafar
Stefanía Sigurðardóttir, Björn Jónsson