680 - Efra Sel - Kaffi Sel

680 - Efra Sel - Kaffi Sel
Fjöldi rúma: 0
  • Aðstaða fyrir fatlaða
  • Handverk sýnt á bænum
  • Kreditkort (Visa/Euro/Mastercard)
  • Golfvöllur við bæinn eða nágr.
  • Tjaldsvæði
  • Máltíðir og/ eða léttar veit.
  • Vínveitingar
Á Efra-Seli er starf­ræktur veit­inga­staður og golf­skáli sem tekur 120 manns í sæti. 18 holu golf­völlur er í landi Efra-Sels og boðið er upp á æfinga­svæði, pútt­flöt og æfinga­glompu.
 
Veit­ingar í boði, meðal annars hinar frægu Kaffi-Sels pizzur, ham­borg­ara, sam­lokur, súpu og brauð og mex­ík­anska rétti. Einnig er í boði veislu­matur (grill, smá­rétta­hlað­borð) fyrir hópa.
 
Boðið er upp á lítið svæði fyrir tjald­vagna við golf­skál­ann og er það einkum hugsað fyrir gesti golfvallarins. Veit­inga­sal­ur­inn hentar vel fyrir hvers konar tæki­færi, s.s. starfs­manna­hópa (golf og grill), afmæli, ferm­inga­veislur, brúð­kaup, fundi o.fl.
 
Efra-Sel er í rúm­lega 1 klst. fjar­lægð frá Reykja­vík, 3 km. frá Flúðum, við veg nr. 30.
 
 
Opið: 01.05. - 15.09, alla daga vikunnar frá kl. 08.00-21.00. Í mars og apríl er opið á föstudögum (17:00-20:30) og á laugardögum (12:00-20:30).  Á öðrum árs­tímum er hægt að panta fyrir hópa – með góðum fyr­ir­vara.
 
Næsta þéttbýli/verslun/sund­laug/hrað­banki: Flúðir 3 km.
 
Netfang: info@kaffisel.is, Heimasíða: www.kaffisel.is
 
Gestgjafar Ástríður G. Dan­íels­dóttir, Hall­dór Guðna­son, Unn­steinn Egg­erts­son, Hall­dóra Hall­dórs­dóttir