Sumarhús og tjaldsvæði, veitingastaður og golfvöllur. Sumarhúsin eru í þremur stærðum: 5 x 4ra manna í fl. C (40 m2) með tveimur svefnherbergjum, stofu, baðherbergi, sjónvarpi og örbylgjuofni (einnig svefnsófi í stofu). 10 x 3ja manna í fl. B (20m2) með baðherbergi og einu litlu svefnherbergi (1 1/2 breidd og koju, einnig svefnsófi í stofu) og 9 x 3ja manna í fl. A (15 m2), svefn- og eldunaraðstöðu í sama rými, svefnsófi og salernisaðstaða. Öll húsin eru með eldunaraðstöðu, sjónvarpi og örbylgjuofnum.
Veitingasalur fyrir allt að 170 manns, hentugur fyrir fundahöld, veislur eða ættarmót.
Baðhús á staðnum með sturtum, heitum pottum, þvottavél og þurrkara. Góð aðstaða fyrir húsbíla og tjaldvagna með rafmagni. Leiksvæði fyrir börn.
Veiði í Hellishólavatni og einnig laxveiði í Þveránni.
Glæsilegur golfvöllur er í landi Hellihóla sem ber heitið Þverárvöllur og er aðili að GSÍ. Fjórhjólaleiga.
Hellishólar eru við veg 261.
Opið: Allt árið
Húsdýr: kindur
Næsta þéttbýli/sundlaug: Hvolsvöllur 10 km.
Golf:18 holu golfvöllur á staðnum
Gestgjafar
Laila Ingvarsdóttir, Víðir Jóhannsson