Gistiaðstaða með sérinngangi á neðri hæð íbúðarhússins, sólstofa og veitingasalur, fallegt útsýni. Gestum er boðið upp á að heimsækja dýrin á bænum. Fjölskylduvænt umhverfi. Leiksvæði fyrir börn.
Merktar gönguleiðir frá bænum á fallega staði, s.s. Nauthúsagil og Bæjargil. Boðið er upp á skemmtilegar dagsferðir í Þórsmörk, með leiðsögn. Stutt í hina sögufrægu Fljótshlíð og á suðausturströndina – Dyrhólaey, Skógarfoss, Skógar, Seljalandsfoss og Mýrdalsjökull.
Stóra Mörk er við veg 248, 9 km frá vegi 1.
Opið: Allt árið.
Búskapur/gæludýr: Kýr, kindur, hundur og kettir.
Þéttbýli/sundlaug/golf: Hvolsvöllur 24 km.
Gestgjafar
Ragna Aðalbjörnsdóttir, Ásgeir Árnason