Gisting í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum í þremur húsum við þjóðveg 1 í Suðursveit. Í gistihúsi 1 og gistihúsi 2 er góð eldunaraðstaða og setustofur. Í gistihúsi 3 eru níu þægileg tveggja manna herbergi. Morgunverður og veitingar með mat frá Hala í veitingasal í Þórbergssetri.
Merktar gönguleiðir og ratleikur í nánasta umhverfi þar sem sagan birtist við hvert fótmál. Áhugavert safn í Þórbergssetri. Tilvalið fyrir námskeið og minni samkomur utan háannatíma. Sérkjör að vetri. Heitur pottur. Jökulsárlón 13 km, Jöklajeppar 20 km
Hali er við þjóðveg 1.
Opið: Allt árið.
Búskapur: Jöklableikja með bleikjueldi.
Næsta þéttbýli/verslun/sund/golfvöllur/söfn: Höfn 70 km.
Gestgjafar
Þorbjörg Arnórsdóttir, Fjölnir Torfason