Skálafell er staðsett mitt á milli Hafnar og Jökulsárlóns, 600 metra frá þjóðvegi 1. Gisting í 2ja-3ja manna herbergjum með og án baðs. Einnig 4ra manna sumarbústaður í boði yfir sumarmánuðina. Kvöldverður fyrir gesti.
Merktar gönguleiðir frá staðnum, með texta úr þjóðsögum og upplýsingum um sögulegar minjar, t.d er klst. ganga að Skálafellsjökli. Í boði eru útsýnisferðir í fjöruna og að jökli. Daglegar ferðir á Vatnajökul 3 km og Jökulsárlón 40 km. Áhersla lögð á persónulega þjónustu.
Skálafell er við veg nr. 1.
Opið: Allt árið.
Búskapur: Kindur, hestar, gæsir og íslenskur hundur.
Næsta þéttbýli/verslun/sund/golf: Höfn 40 km.
Gestgjafar
Þóra Vilborg Jónsdóttir, Þorsteinn Sigfússon