Gistiaðstaða í gömlu hlýlegu húsi 6x2ja manna herbergi. Eldunaraðstaða og borðstofa eru í húsinu. Einnig er boðið upp á 2x2ja manna herbergi á heimili gestgjafa (með tvíbreiðum rúmum). Morgunverður er í boði, og einnig kvöldverður ef pantað er fyrirfram.
Á bænum er rekinn húsdýragarður með fjölbreyttum dýrategundum. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu t.d. inn að, og við Fláajökul. Nálægt bænum er fjölbreytt fuglalíf. Hólmur er vel staðsettur fyrir skoðunarferðir innan sýslunnar t.d. á Vatnajökul, Jökulsárlón og Lónsöræfi.
Hólmur er við veg nr.1.
Opið: Allt árið.
Búskapur/gæludýr: Kindur, geitur, hestar, kanínur, köttur, hundur, hænsni, endur, naggrísir, kálfar, heimalingar, svín o.fl.
Næsta þéttbýli/sundlaug/golfvöllur/verslun/Jöklasafn/Byggðasafn: Höfn 33 km.
Gestgjafar
Guðrún Guðmundsdóttir, Magnús Guðjónsson