Gisting í 23 rúmgóðum herbergjum, öll með sérbaði og sjónvarpi. Veitingar í boði: Morgunverður og kvöldverður, einnig hádegisverður fyrir hópa. Góð aðstaða til funda, veisluhalda eða ættarmóta. Á staðnum er tjaldsvæði og heitur pottur til afnota fyrir gesti. Eldunar- og hreinlætisaðstaða fyrir tjaldgesti.
Staðarborg er staðsett í fögru umhverfi Breiðdalsins. Fallegar gönguleiðir, fjölbreytt dýra- og fuglalíf. Möguleiki á lax- og silungsveiði og einnig gæsaveiði. Hestaleiga á staðnum (1 klst. ferðir) og bátur til útleigu fyrir siglingu um eyjarnar.
Staðarborg er við veg 1, 7 km frá Breiðdalsvík.
Opið: 01.06-31.08 og eftir pöntunum á öðrum tímum.
Næsta þéttbýli: Breiðdalsvík 7 km.
Gestgjafar
Arnór Stefánsson