Gisting í 2 x 2ja manna sumarhúsum (hjónaherbergi einnig svefnsófi í stofu) og gisting í svefnpokaplássi á Sólbrekku (4 x 2m. herbergi og 2 x 1m.). Á Sólbrekku er eldunaraðstaða, borðstofa, setustofa m/sjónvarpi, þvottavél og þurrkara, einnig 3 snyrtingar m/ sturtum. Möguleiki á aukarúmum og morgunverði. Heitur pottur í sérhúsi.
Fallegt útsýni yfir fjörðinn. Skemmtilegar gönguleiðir, sumar stikaðar. Göngukort í boði. Möguleiki á sjóstangveiði og bátsferðir í skoðunarferðir um fjörðinn. Gott berjaland.
Ferjusiglingar tvisvar í viku á milli Neskaupsstaðar og Mjóafjarðar með Fjarðarferðum (sjá
www.fjardaferdir.is - allt árið).
Sólbrekka er við veg 953.
Opið: Gisting í bústöðum 01.05-31.10. Kaffisala í Sólbrekku 01.07.-15.08.
Búskapur: Kindur, hestar, hænur, kanínur og hundar.
Næsta þéttbýli/sundlaug/golf: Egilsstaðir 45 km.
Gestgjafar
Jóhanna Lárusdóttir