Nýlegt gistiheimili við þorpið Bakkagerði á Borgarfirði eystra. Í boði eru 17 x 2ja manna herbergi með baði og möguleiki á aukarúmi. Veitingastaður með áherslu á svæðisbundin matvæli.
Tilvalin staðsetning fyrir gönguferðir, allt frá dagsgöngum upp í sex daga ferðir skipulagðar af leiðsögumönnum á svæðinu. Fuglaskoðun í höfninni í Hafnarhólma sem er þekkt fyrir lunda. Kjarvalssafn og ævintýraland fyrir börnin.
Gestum er velkomið að fylgjast með daglegu lífi á bænum, t.d. sauðburði á vorin og göngum og réttum á haustin.
Gistiheimilið stendur við veg nr 94 .
Opið: Allt árið (Vinsamlega bókið fyrirfram frá 01.10 - 01.04)
Búskapur: Sauðfé
Verslun / Veitingastaður: 400 m.
Næsta þéttbýli: Egilsstaðir 69 km (vegur 94)
Gestgjafar
Jóhanna Borgfjörð, Ásgeir Arngrímsson, Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Þórey Sigurðardóttir