Engimýri er gistihús staðsett við þjóðveg nr. 1, um 33 km vestan Akureyrar. Rúmgóður og bjartur veitingastaður er á staðnum og er hann öllum opinn.
Fallegar gönguleiðir eru við Engimýri m.a. um æskuslóðir Jónasar Hallgrímssonar þjóðskálds okkar Íslendinga. Stutt er í fjölbreytta afþreyingu. Tvö vötn, full af fiski eru við gistihúsið og er frítt að veiða. Rjúpnaveiði í boði á haustin.
Engimýri í Öxnadal er við þjóðveg nr. 1.
Opið: 01.03-31.10.
Næsta þéttbýli: Akureyri 33 km.
Sundlaug: Þelamörk 20 km.
Gestgjafar
Guðlaug Jóhannsdóttir, Hannes Haraldsson