Boðið er upp á gistingu og morgunverð í 4x2ja manna herbergjum og einu fjölskylduherbergi (2 rúm og koja). Herbergi með og án baðs. Gestir hafa aðgang að eldunaraðstöðu, setustofu, sjónvarpi og Internetinu. Margar fallegar gönguleiðir í nágrenninu. Veiðileyfi eru seld fyrir Bjarnadalsá, sem tekur vel við sér þegar sumri fer að halla.
Opið: Júní, júlí og ágúst.
Næsta þéttbýli/verslun: Ísafjörður 23 km og Flateyri 11 km.
Bærinn stendur við veg nr. 60.
Gestgjafar
Hugrún, Jón Grétar, Fríða, Guðmundur